|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 27 janúar 2012 15:23 |
|
Við héldum upp á Þorrann í dag með Þorrablóti í salnum. Hlaðborðið svignaði undan alls kyns góðmeti og fannst börnunum mjög áhugavert og gaman að fá að smakka sviðasultu, hákarl, harðfisk, rúgbrauð, flatkökur m/hangikjöti og súrmeti. Einnig var boðið uppá slátur, kartöflur og rófustöppu. Margir mættu í lopapeysunum sínum og Lilja K var þjóðlega klædd. Sjáið einnig myndir á myndasíðunni. |
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 26 janúar 2012 14:53 |
|
Börnin á Reynistofu fræddust um skákina í dag af tilefni Skákdagsins 2012. Sumir tefldu og voru frekar hugsi aðrir tefldu saman og Ragnheiður Þóra tók eina skák við börnin í upphafi dags. Svo bjuggu þau til tafl og taflmenn og lærðu heiti þeirra og sumir jafnvel mannganginn. |
|
Við verðum í barnatímanum í Stundinni okkar |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 25 janúar 2012 22:40 |
|
Það var kátt á hjalla í Sólborg þegar myndatöku fólkið kom til að taka upp efni fyrir Stundina okkar en þar fjallar Engilráð um margbreytileikann í samfélaginu og hvernig allir geta verið með. Nokkur börn sýndu hvernig bananabrauð verður til frá uppskrift til síðdegishressingar. Svo kom myndatöku fólkið í söngstund, þar var bæði sungið og dansað. Þættirnir verða á dagskrá seinni partinn í febrúar.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 83 |