Í morgun kom Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,formaður Leikskólaráðs í heimsókn til okkar í Sólborg. Heimsóknin er liður í heimsóknarröð hennar til allra leikskóla borgarinnar. Hún flutti okkur einnig þá skemmtilegu frétt að Sólborg hefur nú formlega fengið viðurkenninguna Sérhæfður leikskóli ásamt Múlaborg og Suðurborg. Þorbjörg Helga skoðaði allan leikskólann, ræddi við starfsfólk og börn um starfið og hún stóðst ekki mátið, settist hjá börnunum á Lerkistofu og aðstoðaði þau við útifötin.
Undir lesa meira má sjá fleiri myndir frá heimsókninni.
Það hefur gengið vel hjá okkur að molta í tunnunum á útisvæðinu. Í síðustu viku settum við saman tunnu númer tvö. Vonandi fáum við mold úr þeirri fyrri í lok sumars. Börnin eru alltaf mjög áhugasöm um þetta skemmtilega verkefni en stundum finnst þeim lyktin skrítin. Sjá fleiri myndir í lesa meira.
Fyrsta vikan í kennslu smt skólafærnireglna hefur gengið ljómandi vel og hafa börnin verið dugleg að ná tökum á reglunum. Við byrjum á því að kenna börnunum þær reglur sem gilda á hverju svæði og tökum við eitt svæði fyrir í einu. Núna er það matartíminn. Inni á öllum deildum er gul sól sem börnin safna á hinum svokölluðu brosum. Þegar við höfum öll lært þær reglur sem gilda á hverju svæði og sólin hefur verið fyllt af kringlóttum brosbörnum munu börnin fá einhvern glaðning. Birkistofa ætlar að fara í Nauthólsvík, Víðistofa í strætó niður á tjörn að gefa öndunum og Furustofa ætla í gönguferð uppí Perlu. Börnin á Lerkistofu hafa sólina uppi á vegg og eru hægt og rólega að kynnast reglunum. Í næstu viku ætla þau að prófa að setja bros á sólina og velja sér umbun.