Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Opið hús Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 04 maí 2010 19:52

Leikskólinn Sólborg býður foreldrum og öðrum áhugasömum í Opið hús fimmtudaginn 6. maí kl.15:00- 16:30.     Kynntar verða áherslur vetrarins og hvernig stofurnar hafa útfært þær í starfi með börnunum. Allir eru velkomnir á fimmtudaginn, en einnig er hægt að kíkja við á föstudagsmorguninn.  Börn og starfsfólk í Sólborg.  

 

 
Íþróttadagur í dag Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 30 apríl 2010 14:02

Í dag var velheppnaður íþróttadagur í Sólborg. Skipuð var íþróttanefnd úr starfmannahópnum sem skipulagði daginn. Börnin máttu koma með hjól að heiman og virðist það hafa verið allra vinsælast. Stöðugur straumur barna og starfsmanna var á göngustígnum inn í Sólland. Hver stofa útbjó medalíuspjöld sem á voru 5 verkefni til að leysa og var hægt að stimpla á þau eftir að hafa leyst verkefnið.  Verkefnin voru sippa og húlla, leikir, hjóla, boðhlaup og þrautir.  Fleiri myndir eru inná myndasvæðum stofanna.

 

 
Fyrsta táknmálsfréttin í loftinu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 27 apríl 2010 15:05

 Í dag tókum við upp fyrstu fréttina á táknmáli.  Anna segir okkur frá því hvað við ætlum að gera í tilefni af Degi umhverfisins, en þá munum við taka til og hreinsa hér í kring um skólann. Að birta fréttir á táknmáli á heimasíðunni er þróunarverkefni sem er nýhafið og er styrkt af Þróunarsjóði leikskólaráðs.

  Myndir frá  hreinsunardeginum má sjá hér að neðan og einnig eru komnar inn myndir á myndasíðum stofanna.

 

Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 6 af 62

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Sólborg | Vesturhlíð 1 | 105 Reykjavík | Sími: 551-5380 | Póstur | Viðburðir | Fréttir