|
Dagur umhverfisins 25. apríl |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 27 apríl 2010 09:16 |
|
Í tilefni af degi umhverfisins sem var sunnudaginn 25. apríl ætlum við í Sólborg að taka til hendinni. Á miðvikudaginn verður tiltektardagur og við tökum til á leikskólalóðinni og í kringum hana. Í lok verksins munum við taka mynd af því sem við fundum.
Hér sjáið þið afrakstur dagsins. Börnin tóku mikinn þátt í þessu verkefni og sögðu
„Vááá hvað þetta er mikið rusl“
Allir tóku til hendinni og má sjá mynd af stjórunum í trábeðinu á bílastæðinu. |
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 19 apríl 2010 12:13 |
|
Í tilefni af Barnamenningarviku sem nú stendur yfir verðum við með eftirfarandi dagskrá í Sólborg.
Þriðjudaginn 20. apríl Rauðhetta í Hlíðaskóla kl 10:00 , elstu börnunum á Birkistofu er boðið á nemendasýningu 6ára barna Barnamenning í sal kl. kl. 14:15 stofurnar Viðistofa - Lerkistofa - og Furustofu skemmta með skuggaleikhúsi, söng og dansi.
Miðvikudaginn 21. apríl , þá kveðjum við vetur og fögnum sumri og börnin mega koma með leikfang að heiman, Skemmtilegt væri að koma með útileikfang sem leika má með bæði úti og inni.
Svo bendum við á auglýsingu og dagskrá Barnamenningarhátiðar hér til vinstri á forsíðunni. Á sumardaginn fyrsta verður Hverfahátíð á Miklatúni milli kl. 14-16 . Bak við aðalinngang safnsins verður krítað og boðið uppá andlistmálningu, einnig verða skátarir með einhverja uppákomur.
Á lesa meira hér að neðan má sjá mydir frá atriðum stofanna sem voru glæsileg sýnishorn af menningu barnanna. |
|
Lesa meira...
|
|
Lokað vegna skipulagsdags |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 12 apríl 2010 22:21 |
|
Foreldrar athugið !
Við minnum á að lokað er fyrir hádegi föstudaginn 23. apríl vegna skipulagsdags.Skólinn opnar kl. 12:00, en þá verður framreiddur léttur hádegisverður. Starfsfólk mun nýta morguninn til fræðslu og ber þar hæst SMT skólafærni, en við hefjum innleiðingu með barnahópnum innan skamms.
Leikskólastjóri
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 7 af 62 |