Í dag, 11. mars, kom Birgitte, þýskur kennari í heimsókn í Sólborg. Hún hefur nýverið lokið doktorsprófi í kennslu heyrnarskertra og heyrnarlausra barna. Hún fór inná allar heimastofur og hitti börn og kennara. Auk þess fræddist hún um skólann aðferðir okkar í námi án aðgreiningar og framkvæmd kennslu. Hún lét vel af heimsókninni og fannst við vera framarlega í framkvæmd náms án aðgeiningar. Á myndinni er Birgitte að borða á Birkistofu og um leið að læra nokkur íslensk tákn.
Ljósmyndataka (hóp- og einstaklingsmynda) sem átti að vera 19. febrúar en var aflýst vegna mikilla fjarvista barna þann dag er á dagskrá 5. mars. Myndirnar verða seldar í leikskólanum og sér foreldrafélagið um söluna. Dagsetning verður auglýst síðar.
Jónina leikskólastjóri verður í leyfi vikuna 3.-7. mars. Í forsvari í skólanum verður Ragnheiður Þóra aðstoðarleikskólastjóri. Jónina er á leið til Boston þar sem hún, ásamt hópi skólastjóra og yfirmanna sérkennslu á Leikskóla - og Menntasviði, munu kynna sér það nýjasta á sviði sérkennslu.