Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Heimasíðufréttir á táknmáli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 31 mars 2010 11:19

Miðvikudaginn 24. mars úthlutaði Leikskólaráð þróunarstyrkjum til 11 verkefna í sautján leikskólum. Meðal þeirra  verkefna sem hlaut styrk var leikskólinn Sólborg, Við ætlum að gera  tilraun með að birta heimasíðufréttir úr leikskólanum á táknmáli. Í umsókninni segir að við ætlum að gera fréttir og upplýsingar aðgengilegar heyrnarlausum á þeirra móðurmáli, táknmáli.  Við viljum að heyrnarlausir nemendur Sólborgar upplifi móðurmál sitt sýnilegt og viðurkennt. Síðast en ekki síst viljum við styðja við þá réttindabaráttu að táknmál verði viðurkennt sem móðurmál heyrnarlausra. Á myndinni eru Regína og Jónina við afhendinguna, en þær eru ásamt Helgu, Maríu og Soffíu í hópi sem fer fyrir verkefninu í Sólborg.

 
Góðir gestir í heimsókn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 25 mars 2010 13:35

 Kasía leikskólakennari sem er í fæðingarorlofi um þessar mundir kom í heimsókn í dag með litlu dóttur sína sem heitir Joanna María. Gaman að sjá og hitta þær báðar. Takk fyrir komuna  

 
Sólborg í úttekt hjá menntamálaráðuneytinu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 25 mars 2010 13:20


 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur ákveðið að  gera þrjár úttektir á leikskólastigi á vormisseri 2010 í samræmi við 20. gr.  aga um leikskóla nr. 90/2008. Sólborg er einn af þessum þrem leikskólum sem urðu fyrir valinu í þetta sinn. 

Við fögnum því  tækifæri sem úttekin gefur okkur og hlökkum til að fá álit svo reynslumikilla aðila á öllu okkar starfi.

 

 

 

Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 62

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Sólborg | Vesturhlíð 1 | 105 Reykjavík | Sími: 551-5380 | Póstur | Viðburðir | Fréttir