|
Þroskaþjálfanemar í verknámi |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 18 mars 2010 12:45 |
|
Tveir nemar á öðru ári í Háskóla Íslands, þroskaþjálfafræði hófu verknám sitt í byrjun vikunnar. Þær verða hjá okkur frá 15. mars til 7. maí. Verkefnið þeirra er að kynna sér vinnu við gerð einstaklingsnámskrár. Súsanna Oddsdóttir til vinstri á myndinni er á Furustofu og Viktoría Sigurgeirsdóttir er á Birkistofu. Velkomnar í verknám og við vonum að verknámið ykkar standist væntingar.
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 18 mars 2010 11:27 |
|
Kringlusafn Borgarbókasafnsins lánar okkur tvö bókar koffort í tvo mánuði. Það eru nokkrar útlánsreglur sem allir verða að hafa í huga. Hvert barn má hafa tvær bækur heima í einu. Útlánstíminn er ein vika. Skrifa þarf nafn barnsins, nafn bókarinnar og dagsetningu þess dags sem bókin er fengin að láni í stílabók sem staðsett er við bókakassana. Þegar bókinni er skilað aftur skal stikað yfir nafn barnsins. Reglurnar eru innan í loki koffortanna.
Elstu börn leikskólans fóru á kynningu á Kringlusafnið í byrjun vikunnar, skoðuðu safnið, fræddust um umgengni um bækur og í lokin var lesin fyrir þau saga. Þetta er liður í samstarfi leikskóla borgarinnar og Borgarbókasafnsins. |
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 12 mars 2010 22:53 |
|
Þrír starfsmenn Klambra komu til okkar eftir hádegið í dag í kynnisheimsókn. Það var starfsdagur hjá þeim og nýttu þau eftirmiðdaginn til heimsókna. Það er alltaf fróðlegt að fara á milli leikskólanna og kynna sér þá starfsemi sem þeir hafa uppá að bjóða auk þess sem við lærum alltaf eitthvað af gestunum okkar. Það var því sannkölluð gestasteming hjá okkur í dag. Góða helgi. |