Í morgun fengum við gesti alla leið frá Noregi. Þar voru á ferð leikskólakennarar í námsferð til Íslands. Það voru 18 manns sem ferðuðust til Íslands og var hópnum skipt á þrjá leikskóla en til okkar komu fimm kennarar. Leikskólinn er foreldrarekinn leikskóli og heitir Billingstad barnehage þar eru fjórar deildir eins og hjá okkur og ein útikennslustofa. Þessa fínu elgi fengum við í gjöf frá þeim. Hér má finna heimasíðuna þeirra fyrir áhugasama. http://billingstad.barnehage.no/
Föstudaginn 26. mars komu tvær stúlkur í heimsókn úr Skólahljómsveit Austurbæjar. Þær heita Kaðlín og Rán og er önnur þeirra er dóttir Sjafnar á Birkistofu. Þær spiluðu á tvö hljóðfæri, klarinett og óbó en þær eru nýbyrjaðar að læra á óbóið.. Til gamans tóku þær með sér hlóðfærið ukulele og var gaman að heyra hvernig það hljómar. Takk fyrir komuna.
Nýjung í dagskránni - opnar stofur einn eftirmiðdag í viku
Sú nýbreytni er á dagskipulaginu okkar að einn eftirmiðdag í viku eru allar leikstofur opnar. Það þýðir að frá klukkan 14:00 - 16:00 geta börnin farið inná þá leikstofu sem þau vilja og leikið þar. Þannig fá þau tækifæri til að skoða leikefni annara stofa, eignast nýja leikfélaga og bara breyta aðeins til. Kennarar ákváðu að hafa mismunandi daga í boð þ.e. fyrstu vikuna var mánudagur, aðra vikuna þriðjudagur og svo koll af kolli. Þessi nýjung hefur mælst vel fyrir hjá öllum og munum við endurmeta þetta eftir einn til tvo mánuði.