|
Almennar fréttir
|
|
Við minnum á skipulagsdaginn mánudaginn 7. júní, en þá er lokað í leikskólanum. Starfsfólk mun nýta daginn til endurmats vetrarstarfsins og undirbúnings fyrir komandi skólaár.
Skipulagsdagurinn tókst vel og var bæði skemmtilegur og fróðlegur. Við unnum endurmat á ýmsum þáttum svo lögðust allir á eitt með að skipuleggja sem best fyrir börnin næsta vetur. Veðrið var svo gott að við fluttum einn fyrirlesturinn út í garð og nutum veðurblíðunnar. Vona að þið hafið notið dagsins með börnunum ykkar.
|
|
Síðast uppfærsla: mánudagur, 07 júní 2010 20:52 |
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 02 júní 2010 14:21 |
|
Nú eru vorverkin í fullum gangi í Sólborg . Svo áhugasamir eru starfsmenn að þeir nota matarhléið sitt til að vinna íkálgarðinum enda lítur hann vel út í ár. Börnin eru byrjuð að setja niður kartöflur og annað grænmeti og blóm eru í forræktun innivið.
Sjöfn og Lilja í garðinum
Anna Óla segir ykkur fréttina á táknmáli
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 27 maí 2010 13:32 |
|
Það voru stoltir foreldrar og kennarar sem fylgdust með elstu börnunum útskrifast í dag. Börnin sögðu sjálf frá verkefnum vetrarins, þau lásu upp og að lokum sungu þau Þúsaldarljóðið bæði á íslensku og táknmáli . Að því loknu tóku þau á móti vinnubókunum sínum úr höndum kennara. Það var ánægjulegt að horfa yfir salinn og sjá stolta foreldra og einnig hve stoltur starfsmannahópurinn var af útskriftarhópnum sem við höfum fylgst með vaxa og dafna öll leikskólaárin. Til hamingju með daginn.
Sjá má nokkrar myndir á lesa meira og síðan eru fleiri myndir í myndaalbúminu undir sameiginlegt- útskrift 2010
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 4 af 62 |