|
Meginmarkmið leikskólans er að móta skóla sem mætir þörfum allra barna í sameiginlegu umhverfi. Heildtæk skólastefna snýst um viðhorf, aðferðir og vinnubrögð sem nauðsynlegt er að viðhafa til að ná þessu markmiði. Sérhæfing skólans á sviði kennslu heyrnarskertra og heyrnarlausra barna og notkun táknmáls í skólanum hefur áhrif á allt starf leikskólans. Börnin fá meðal annars að kynnast táknmáli frá fyrstu hendi þar sem heyrnarlausir starfsmenn eru hluti af starfsliði skólans. Starfsáætlun og dagskipulag er í föstum skorðum þar sem skiptast á skipulagðar starfsmannastýrðar stundir sem eru hluti af formlegu námi og frjálst val barna um svæði og námsefni, en þar fer fram nám í gegnum leik og samskipti. Áhersla er lögð á að hámarka námsmöguleika barnsins með því að vanda vel til leikefnis og námsumhverfis. Í stundaskrá barnanna má finna málörvunarstundir, hópastarf/samverustundir, íþróttir, könnunarleik, valstundir, útiveru og fleira.
|
|
|
Hópastarf er á hverjum degi og kalla sumir hópar þessar stundir samverustundir. Í hópastarfi/samverustundum vinna börnin eftir þemaáherslum skólans og elstu börnin vinna að sinni námskrá í gegnum ákveðið þema.
Yngstu börnin eru að læra að vera saman í hóp, en þar á sér stað mikil málörvun í gegnum hvers kyns verkefni við þeirra hæfi.
|
|
Skipulagðir íþróttatímar eru einu sinni í viku fyrir öll börn í skólanum. Þessum tímum er stjórnað af íþróttakennara. Auk íþróttatímanna fara nokkur börn í svokallaða aukatíma milli 13:00 og 14:00. Í íþróttatímum er lögð áhersla á að stuðla að auknum líkamlegum, andlegum og félagslegum þroska, auka samhæfingu, þor og jafnvægi.
Unnið er að þessum þáttum í gegnum leiki, þrautabrautir og ýmsar fín- og grófhreyfingar.
Á sumrin fer íþróttakennslan fram úti í nátturunni og er þá Öskjuhlíðin óspart notuð til leikja eins og ratleikja og fleira.
Eftir hádegi hafa börnin einnig aðgang að salnum og þá eru tímarnir undir stjórn kennara stofunnar.
|
|
|
Könnunarleikur er hluti af hópastarfi yngstu barnanna.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
|