|
|
Nýjar reglur um leikskólaþjónustu |
|
|
|
|
Nýjar Reglur um leikskólaþjónustu
sem taka gildi 1. nóvember 2009
Til foreldra barna á leikskólaaldri.
Á fundi leikskólaráðs þann 23. september síðastliðinn voru samþykktar reglur um leikskólaþjónustu.
Reglur um leikskólaþjónustu taka gildi 1. nóvember 2009 og koma í stað núgildandi reglna um umsókn, innritun, gjaldtöku og innheimtu leikskóla.
Nokkrar breytingar eru gerðar á frá núgildandi reglum, eitthvað er um nýmæli og í nokkrum tilfellum er verið að festa niður framkvæmd.
Athygli er vakin á breytingu á reglum um afslátt af leikskólagjöldum.
Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.
og einnig má nálgast helstu upplýsingar hér
Umsókn um afslátt af námsgjaldi leikskóla ná finna hér
|
|
|
Leikskólataskan , hvað eiga börnin að hafa með sér í skólann? |
|
|
|
|
Hvað á að vera í leikskólatöskunni ?
Nauðsynlegt er að börnin hafi föt til skiptanna (buxur, bol, sokka, nærbuxur, sokkabuxur) í tösku í hólfum sínum. Auk þess þurfa börnin að hafa pollagalla, stígvél, hlýja ullarpeysu, vettlinga og annan útiverufatnað. Mikilvægt er að foreldrar merki föt barna sinna. Dýrmætur tími getur farið í að velta fyrir sér hver á hvaða flík og afleiðingar þessa geta orðið þær að dýr fatnaður glatast. Munið því að merkja öll föt vel! Foreldrar eru beðnir að tæma hólf barna sinna á föstudögum. Í leikskólanum er unnið með ýmis leikefni svo sem málningu og lím og þarf val foreldra á fatnaði barnanna að taka mið af því. Börnin nota svuntur, t.d. við að mála, en oft duga þær ekki alveg. Foreldrum er bent á að þekjulitir eiga að nást úr fötum séu þau þvegin úr köldu vatni.
|
Veikindi barna.
Vinsamlegast tilkynnið veikindi, frí eða önnur forföll barna til leikskólans, helst fyrir kl. 9:00. Foreldrar verða að greiða fyrir þann tíma sem börnin eru fjarverandi dag og dag vegna veikinda. Ef um langvarandi veikindi er að ræða gilda aðrar reglur. Einnig skal minna á að foreldrar geta beðið um að barnið taki ekki þátt í útiveru í einn dag eftir veikindi. Börn sem hins vegar geta ekki verið úti sökum veikinda eiga að vera heima. Vikið er frá þessum reglum ef um er að ræða barn með slæman asma eða þegar barn er að ná sér eftir alvarleg veikindi, t.d. lungnabólgu. Trúnarðarlæknir leikskólanna er Katrín Davíðsdóttir.
|
|
Við gerum okkur glaðan dag á afmælisdögum barnanna. Veitingar eru útbúnar í leikskólanum, við poppum, búum til ávaxtaklaka og velur afmælisbarnið veitingarnar. Afmælisbarnið fær kórónu og við notum sérstakan afmælisstjaka til hátíðabrigða. Foreldrar eru því vinsamlega beðnir að koma ekki með sælgæti eða kökur að heiman. Yngstu börnin fá oftast rúsínur í stað poppkorns þar sem poppkorn getur reynst litlum börnum hættulegt.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lyfjagjöf á leikskólatíma |
|
|
|
Lyfjagjafir. Í samráði við trúnaðarlækni hafa verið lagðar ákveðnar línur varðandi lyfjagjöf í leikskóla. Starfsfólk mun gefa lyf þegar um er að ræða t.d. flogaveikilyf eða asmalyf. Lyfin eru geymd í leikskólanum í læstum lyfjaskáp og gilda ákveðnar reglur um merkingar og magn lyfja sem geymd eru í leikskólanum hverju sinni. Fúkkalyf sem börn taka í stuttan tíma á ekki að þurfa að gefa í leikskólanum. Að sögn trúnaðarlæknis er nóg að gefa slík lyf með hálfu mjólkurglasi að morgni, þegar komið er heim úr leikskóla og fyrir svefn.
Trúnaðarlæknir er Katrín Davíðsdóttir.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 2 |