|
Umhverfismennt - Grænfáninn |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 25 júní 2010 10:18 |
|
Þriðjudaginn 22. júní kom Orri Páll fulltrúi Landverndar til okkar í úttekt vegna verkefnisins Skólar á grænni grein. Markmið okkar var að ná skrefunum sjö og flagga Grænfánanum. Þátttaka í verkefninu gengur út á að skilgreina sjö megináhersluatriði, stundum kölluð skrefin sjö að Grænfánanum og vinna með þau. Þegar þau hafa verið stigin mun Leikskólinn vinna til alþjóðlegrar viðurkenningar, Grænfánans, sem staðfestingu á góðum ásetningi og virku umhverfisverndarstarfi.
Það hefur nú tekist og fáum við Grænfánann afhentan og flöggum honum með viðhöfn í haust.
Til hamingju öllsömul með þennan merkisáfanga. Skýrslu umhverfismenntar má lesa hér.
|