Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn Sólborg Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Sólborg er einn af leikskólum Reykjavíkur og heyrir undir Leikskólasvið. Skólinn tók til starfa í júlí 1994.  Gert er ráð fyrir að 71 barn séu samtímis í skólanum og boðið er uppá 4 - 9 tíma vistun.  Börnin skiptast á 4 stofur: Lerkistofu, Birkistofu, Furustofu og Víðistofu.  Að jafnaði dvelja um 12 börn með umtalsverðar sérþarfir í leikskólanum.

Sérstaða skólans felst í sameiginlegu uppeldi og menntun fatlaðra og ófatlaðra barna og stefna og aðferðir taka mið af hugmyndafræði  Náms án aðgreiningar.   Skólinn leggur áherslu á að viðurkenna og virða margbreytileika hjá börnum og vinna með tilliti til ólíkra þarfa þeirra. Á þremur stofum leikskólans dvelja heyrnarlaus/heyrnarskert börn ásamt heyrandi börnum.  Stofurnar hafa það að markmiði að nota tvö mál íslensku og íslenskt táknmál. Auk þess fá öll börn í Sólborg tækifæri til að kynnst máli og menningu heyrnarlausra.  

Sólborg sinnir ráðgjöf til annarra leikskóla vegna kennslu og námsumhverfis heyrnarskertra barna og náms án aðgreiningar.  netfang  Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.                                                       

pdf Bæklingur gesta

pdf Sameiginlegt nám heyrandi og heyrnarlausra/skertra barna

pdf Bæklingur gesta - English

 

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Sólborg | Vesturhlíð 1 | 105 Reykjavík | Sími: 551-5380 | Póstur | Viðburðir | Fréttir