|
Sumarstarf elstu barna 2010 |
|
|
|
|
mánudagur, 21 júní 2010 15:36 |
|
Í júní mánuði ætlum við að bjóða upp á sérstakt sumarstarf fyrir elstu börn Sólborgar (fædd 2004). Ætlunin er að bjóða börnunum upp á vettvangsferðir fyrir hádegi. Unnið er úr ferðum vikunnar í máli og myndum í svokallaða Ferðadagbók. Sögumaður dagsins segir þar frá því sem honum fannst áhugaverðast í ferð dagsins.
Hér má sjá dagskrá sumarstarfsins í myndum.
|
|
|
þriðjudagur, 08 júní 2010 11:25 |
|
8.júní 2010
Kæru foreldrar
Allir í sumarskapi á Birkistofu, góða veðrið leikur við okkur og við höfum verið mikið úti. Yngri hópurinn er búin að fara í fjöruferðir og finna margt skemmtilegt þar. Við erum búin að gróðursetja í Lundinum okkar, búa til lítinn jurtagarð, eins settum við niður blóm inná stofu. Kartöflurnar eru komnar í garðinn og við erum búin að skoða marga orma og bíflugur og hlusta á fuglasönginn.
Elstu börnin eru búin að hafa mikið að gera. Klára bækurnar sínar, fara í útskriftarferð í Viðey, sem var mjög skemmtileg og svo var útskriftardagurinn þeirra 27. maí sl. sem var góður dagur. Útiíþróttir byruðu í lok maí, þá eru börnin hér í nágrenninu í ýmsum leikjum.
Sumarstarf elstu barna byrjar 14. júni og verður fram að sumarfríi. Þá fara elstu börnin í salinn, þar búum við til elstubarnadeild, sem þeim finnst mjög spennandi. Það verður send heim dagskrá um það fljótlega.
Sumarkveðja frá Birkistofu |
|
föstudagur, 23 apríl 2010 13:37 |
|
Kæru foreldrar, Gleðilegt sumar og takk fyrir samstarfið og samveruna í vetur.
Við fórum öll í Gerðuberg á Krummasýningu sem var mjög skemmtileg, þar var sögð krummasaga og sungin krummalög. Við vorum búin að undirbúa okkur áður, æfa lögin og bjuggum öll til krummagrímu. Elstu börnin fóru í Hákólabíó og sáu Maximús músíkmús. Síðan var þeim boðið í Hlíðarskóla að sjá Rauðhettu hjá fyrsta bekk.
Hjá okkur er nemi frá Borgarholtsskóla í starfskynningu sem heitir Rakel. Hún verður hjá okkur þrjá daga í viku, í þrjár vikur.
Í næstu viku 26. - 30.apríl ætlum við að vinna með sjálfsmynd, líkamsþekkingu, fjölskylda og vinir og eftir það byrjum við að tala um vorið og öllu sem því fylgir.
Um miðjan febrúar byrjuðum við að hafa opið á milli deilda einn dag í viku. Við köllum það opið flæði og hefur það reynst vel. Börnin heimsækja hvort annað og leika á öðrum deildum og eru ánægð með þessa nýjung.
Hvetjum ykkur til að skoða myndir á heimasíðu, sem segja meira en mörg orð.
Kveðja frá Birkistofukennurum |
|
miðvikudagur, 24 mars 2010 15:19 |
|
Kæru foreldrar
Nú er tónlistartímabilinu lokið, búið að vera skemmtilegur tími. Við erum búin að hlusta á allskonar tónlist frá hinum ýmsu löndum, spila á hljóðfæri, fengið gesti til okkar sem spiluðu fyrir okkur. Heimsóttum hljóðfæraverslunina Rín, bjuggum til hljóðfæri, dönsuðum og sungum og brölluðum ýmislegt í útikennslunni. Elstu börnin eru búin að vera á ferð og flugi, þau eru að byrja að vinna með eldinn eftir páska, ekki slæmt að upplifa ekta eldgos í leiðinni!
Foreldraviðtölum lokið og við þökkum fyrir gott spjall.
14. apríl förum við öll á Birkistofu í heimsókn í Gerðuberg, þar er dagskrá sem heitir Krummi krunkar úti. Við erum að undirbúa okkur fyrir það og erum að syngja allskonar krummavísur og ætlum að búa til krummagrímur sem við tökum með okkur.
Nú líður að páskum og vorið á næsta leiti.
Óskum ykkur gleðilegra páska
Kveðja frá Birkistofu
|
|
föstudagur, 11 desember 2009 13:51 |
|
Kæru foreldrar
Brátt koma jólin og við erum búin að klippa líma og mála núna í desember og eflaust margir komið með glimmer á sér heim. Við erum með jólastund á hverjum morgni kl. 10 þá lesum við söguna Ævintýrið um augastein og syngjum jólasöngva og opnum dagatalið.
Í kvöld kemur fyrsti jólasveinninn til byggða, hann Stekkjastaur. Við töluðum um það í morgun og lékum smá leikrit fyrir börnin.
Á þriðjudaginn förum við í Sólland kl. 9 í myrkrinu, kannski hittum við jólasveininn.....hver veit? Svo hittumst við á jólaballinu þann 17 desember.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 4 |