|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 18 ágúst 2010 09:28 |
|
Við héldum uppá 16 ára afmæli Sólborgar 20. ágúst, Ávaxtaveisla var í salnum og síðan var slegið upp balli allir voru í búningum og skemmtu sér vel.
Við fengum vísu frá Ingu Jónu í til efni dagsins, en hún hljóðar svo.
Sextán ára með svaka glans, stöðugt kann að bjóða. Gleði í góðum krakkafans, góðvild líka hljóða.
.JPG)
Afmælið tókst vel, hér má sjá nokkur börn uppáklædd að snæða pítsu í hádeginu úti í góða veðriðnu. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 10 ágúst 2010 16:37 |
|
Á hverju hausti fá einhver börn í leikskólanum nýja heimastofu. Flest börnin sem verið hafa á Lerkistofu fara á Birkistofu, en þar voru elstu börnin okkar síðastliðinn vetur. Hér sjáið þið fyrri hópinn af Lerkistofu, tilbúin með myndina af hólfinu sínu sem þau setja með viðhöfn á nýja hólfið sitt. Þessar tilfærslur ganga vel og allir sáttir og spenntir fyrir nýju umhverfi og fólki.
|
|
Starfsáætlun skólársins 2010-2011 |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
Starfsáætlun vetrarins er komin á síðuna og má finna hana hægra megin undir Leikskólinn. Þar má einnig finna viðhorfskannanir og fleira fróðlegt. Starfsáætlunni fylgir dagatal með starfsdögum/skipulagsdögum vetrarins . Fyrsti skipulagsdagur er 27. ágúst en þá er lokað í Sólborg. |
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 02 júlí 2010 16:14 |
|
Lokað verður í leikskólanum Sólborg frá og með deginum í dag til 3. ágúst. Hafið það gott í sumarorlofinu, sjáumst hress í ágúst. Kveðja, allir í Sólborg
|
|
Umhverfismennt - Grænfáninn |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 25 júní 2010 10:18 |
|
Þriðjudaginn 22. júní kom Orri Páll fulltrúi Landverndar til okkar í úttekt vegna verkefnisins Skólar á grænni grein. Markmið okkar var að ná skrefunum sjö og flagga Grænfánanum. Þátttaka í verkefninu gengur út á að skilgreina sjö megináhersluatriði, stundum kölluð skrefin sjö að Grænfánanum og vinna með þau. Þegar þau hafa verið stigin mun Leikskólinn vinna til alþjóðlegrar viðurkenningar, Grænfánans, sem staðfestingu á góðum ásetningi og virku umhverfisverndarstarfi.
Það hefur nú tekist og fáum við Grænfánann afhentan og flöggum honum með viðhöfn í haust.
Til hamingju öllsömul með þennan merkisáfanga. Skýrslu umhverfismenntar má lesa hér. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 35 |