Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Sólborg 16 ára Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 18 ágúst 2010 09:28

Við héldum uppá 16 ára afmæli Sólborgar 20. ágúst, Ávaxtaveisla var í salnum og síðan var slegið upp balli allir voru í búningum og skemmtu sér vel.

                                                            

 

 Við fengum vísu frá Ingu Jónu í til efni dagsins, en hún hljóðar svo. 

Sextán ára með svaka glans, stöðugt kann að bjóða. Gleði í góðum krakkafans, góðvild líka hljóða.

 

 

 

Afmælið tókst vel, hér má sjá nokkur börn uppáklædd að snæða pítsu í hádeginu úti í góða veðriðnu.

 
Pistill að loknu sumarleyfi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Víðistofu
föstudagur, 13 ágúst 2010 15:36

Ágætu foreldrar á Víðistofu!

Nú eru flestir mættir til leiks að loknu sumarfríi.  Börnunum hefur fjölgað á stofunni okkar, 9 börn frá Birkistofu skiptu um stofu og gerðust Víðistofubörn.        Tvær stúlkur frá okkur fluttu sig líka um set og fóru á Furustofu.  Í haust verða öll elstu börnin á Víðistofu og verða 24 talsins!

Í dag var okkur boðið að koma á sumarhátíð hjá nágrönnum okkar, börnum og starfsfólki í frístundaheimili Öskjuhlíðarskóla.  Þar fengum við veitingar og hlustuðum á tónlist, auk þess að prófa ýmis leiktæki -mjög skemmtilegt! 

Bestu kveðjur frá Víðistofukennurum!

 
Að fara á nýja stofu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 10 ágúst 2010 16:37

Á hverju hausti fá einhver börn í leikskólanum nýja heimastofu.  Flest börnin sem verið hafa á Lerkistofu fara á  Birkistofu, en þar voru elstu börnin okkar síðastliðinn vetur.  Hér sjáið þið  fyrri hópinn af Lerkistofu, tilbúin með myndina af hólfinu sínu  sem þau setja með viðhöfn á nýja hólfið sitt.  Þessar tilfærslur ganga vel og allir sáttir og spenntir fyrir nýju umhverfi og fólki.    

 
Starfsáætlun skólársins 2010-2011 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir

Starfsáætlun vetrarins er komin á síðuna og má finna hana hægra megin undir Leikskólinn. Þar má einnig finna viðhorfskannanir og fleira fróðlegt. Starfsáætlunni fylgir dagatal með starfsdögum/skipulagsdögum vetrarins . Fyrsti skipulagsdagur er 27. ágúst en þá er lokað í Sólborg.  

 
Sumarlokun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 02 júlí 2010 16:14

Lokað verður í leikskólanum Sólborg frá og með deginum í dag til 3. ágúst.  Hafið það gott í sumarorlofinu,  sjáumst hress í ágúst.  Kveðja, allir í Sólborg 

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 31

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Sólborg | Vesturhlíð 1 | 105 Reykjavík | Sími: 551-5380 | Póstur | Viðburðir | Fréttir