Frábærar myndir af ferðum elstu barnanna út um alla borg:)
kveðja, Hilda
fimmtudagur, 24 júní 2010
Gaman að sjá einnig fréttir um skólastarfið á táknmáli
Ykkur er enn saknað... bæði af krökkum og FORELDRUM :)
Kveðja,
Gígja
mánudagur, 14 júní 2010
Við vildum bara kvitta fyrir komuna á þessa frábæru síðu. Gaman að sjá myndirnar og lesa fréttir.
Skrítin tilfinning að vera að kveðja Sólborg í næstu viku eftir 9 ár, sem starfsmaður og foreldri.
Þökkum allt sem við höfum lært og grætt á Sólborgarárunum okkar.
Kveðja Ingibjörg, Sölvi, Sunna Þuríður og Bjarki Freyr
mánudagur, 31 maí 2010
Kæru Sólborgarkonur,
við mæðgurnar kíkjum af og til á myndirnar hérna á síðunni og hafa stelpurnar auðvitað mest gaman af því að sjá myndir frá því í fyrra þegar þær voru báðar á Sólborg. Þær vilja þó líka sjá nýjar myndir. Fanney talar oft um hve mikið hún hlakki til að kíkja í heimsókn á Sólborg í sumar þegar við förum til Íslands í sumarfrí.
Kveðja frá Árósum, Þóra, Fanney Rós og Iðunn Embla :)
laugardagur, 15 maí 2010
Halló Birkistofa
Það var gaman að skoða myndir af Birkistofu. Það er skemmtilegt að fara í ferðir eins og í Háskólabíó að sjá Maximús og í Gerðuberg að sjá sýninguna um Krumma. Það var líka gaman að syngja fyrir forsetann í 50 ára afmæli Félags heyrnarlausra.
Kær kveðja frá Rósu Guðbjörgu og fjölskyldu


mánudagur, 03 maí 2010
Kæru Sólborgarkonur,
innilega hamingjuóskir með styrkinn til að setja táknmálsfréttir á síðuna. Þetta er glæsilegt verkefni og til fyrirmyndar líkt og ykkar frábæra starf í Sólborg.
Bestu kveðjur,Guðrún Snorra.
miðvikudagur, 14 apríl 2010
Til hamingju með forvarnarsjóði og Hilmar alltaf skoða mynd og glað sjá mynd flott kv,Rannveig og Hilmar Egill 

miðvikudagur, 14 apríl 2010
Gaman að sjá myndirnar en við áttum notalega kvöldstunda að skoða þær með skemmtilegum skýringum frá Arnóri. 
hér koma nokkrir broskarlar frá Arnóri 



fimmtudagur, 18 mars 2010
Sit hér heima veikur og þá var gaman að fá að skoða myndir frá Furustofu :)
fimmtudagur, 11 mars 2010
Gaman að skoða myndirnar frá útikennslu Víðistofu og ferðinni á Árbæjarsafnið :)
sunnudagur, 07 mars 2010
Ofsalega gaman að sjá myndir úr útikennslunni! Hugmyndaríkir starfsmenn!
Bestu kveðjur og þakkir.Foreldrar Katrínar.
föstudagur, 05 mars 2010
Vá hvað krakkarnir voru flott í dag í afmælinu hjá Döff félaginu. Ég var djúp snortin að sjá þau... svo flott og innileg...
Sakna ykkar....
Gígja
fimmtudagur, 11 febrúar 2010
Við vorum að skoða myndirnar um fjársjóðsleitina og NÚ skilur mamma allt talið í bílnum á leiðinni heim um vindhörpu, indíanatjald með engu yfir, göng og margt fleira. Takk fyrir þessar fínu myndir og fyrir að setja þær inn strax, góð stund heima að skoða þetta og spjalla um leikskóladaginn. Bestu kveðjur á Víðistofuna frá Hjördísi og Stefaníu...
miðvikudagur, 10 febrúar 2010
Innilega til hamingju með styrkinn úr forvarnarsjóði. Þar sýnið þið enn og aftur hve frábært starf þið eruð að vinna! 
fimmtudagur, 07 janúar 2010
Langaði að kasta til ykkar kveðju. Emil Ingi langar mikið til að koma og hitta sólborgina aftur. Um daginn fór hann í afmæli til Odds og við keyrðum fram hjá Sólborg.. fékk hann alveg sting í hjartað.. og sagði "mamma, þarna er Sólborgin mín". Svo þegar hann mætti í afmælið þá voru þarna gömlu furustofubörnin og hann var alveg klökkur..
fannst svo gaman að sjá alla vinnina aftur. 
Við reynum að kikja til ykkar fljótlega..
Með kveðju,
Gígja
mánudagur, 16 nóvember 2009
Við, fjölskyldan á Íslandi og í Bandaríkjunum, erum ákaflega ánægð með Sólborg og þá metnaðarfullu kennslu sem Anna fær að njóta. Enda blómstrar sú stutta sem aldrei fyrr.
Okkur finnst gaman að skoða myndirnar úr skólanum saman og ræða þær. Önnu finnst mjög skemmtilegt að fá að segja okkur frá því sem er að gerast á myndunum. Það er greinilegt að hún er ánægð í skólanum og stolt af því sem hún er að gera þar.
Hjartans þakkir fyrir metnaðarfull og vel unnin störf!
Ingibjörg -mamma Önnu á Lerkistofu
laugardagur, 07 nóvember 2009
Bara að kvitta fyrir komuna á síðuna.
Frábært að geta skoðað myndir frá stofunni heima.
Kveðja Ingibjörg og Bjarki Freyr (Víðistofu)
laugardagur, 07 nóvember 2009
við mæðgur skoðuðum helling af myndum og höfðum gaman af, sérstaklega afmælishátíðarmyndirnar og mikið talað um góðu afmæliskökuna. Takk fyrir okkur.
Móa, Ísold og Karólína
föstudagur, 06 nóvember 2009
Þá er komin gestabók á heimasíðu Sólborgar. Það verður gaman að fylgjast með henni. Kveðja Ragnheiður Þóra.
fimmtudagur, 29 október 2009